Kenndi hlustendum munn við trýni skyndihjálp

Hanna Arnórsdóttir dýralæknir ræddi um skyndihjálp gæludýra í síðdegisútvarpi Bylgjunnar í dag.

Þar gaf hún meðal annars hunda- og kattareigendum góð ráð ef dýrin fara í hjartastopp. Mestu máli skipti að finna út úr því hvort að dýrið væri í hjartastoppi og eins finna hvort það andaði enn.

Hanna segir einkenni dýra geta verið svipuð og hjá mannfólkinu. Þau falli á hliðina, detti niður eða reki upp vein. Þá geti þau einnig fölnað upp og blánað, til dæmis ef eitthvað hefur hrokkið ofan í dýrið.

Ef dýrið er í hjartastoppi þurfi að hefja hnoð strax. Best sé að leggja dýrið á hægri hlið í flestum tilfellum katta og hunda nema þegar hundurinn er með mjög breiðan brjóstkassa þá þyrfti að leggja hann á bakið líkt og mannfólk.

Síðan er hjartahnoð framkvæmt.

Hanna segir aðferðina vera munn við Trýni. Það virki þannig að kjaftinum er haldið lokuðum og síðan setur maður sinn munn yfir trýnið. „Það getur nú ekki orðið nánara sambandið,“ segir Hanna.

Síðan sé blásið í gegnum nefið og mikilvægt sé að blása ekki of hratt.

Að sögn eru engir sjúkraflutningar fyrir dýr, fólk þurfi að sinna skjótum viðbrögðum sjálft. Á meðan fólk reyni sé það allavega að gera eitthvað.

Hægt er að hringja bráðavakt fyrir dýr, númerið fyrir höfuðborgarsvæðið og nágrenni er 530-4888. Fleiri númer er hægt að nálgast á vefsíðu Matvælastofnunar.