Menntaður kennari og leiðbeinandi sögðu upp störfum sínum í Patreksskóla í Vesturbyggð. Ástæða uppsagnarinnar voru ásakanir á hendur sveitarstjórnarmanns innan skólans, Maríu Ósk Óskarsdóttur.
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Kennarinn hóf störf haustið 2018. Hann sagði upp í apríl 2019. Leiðbeinandinn hætti störfum í nóvember síðastliðnum. Kennarinn sagði að eineltið hefði beinst að honum og mótmælti hann ásamt hópi samstarfsfólks og sakaði Maríu Ósk um einelti.
María Ósk er leiðbeinandi í skólanum og sveitarstjórnarfulltrúi í Vesturbyggð. Hún situr í meirihluta sveitarstjórnar fyrir hönd Nýrrar sýnar. Á vef Fréttablaðsins segir að málið tengist erjum innan fjölskyldu María Óskar og kennarans. Þá segir að samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er María Ósk sökuð um að hafa tekið deilurnar inn á vinnustaðinn og gert starfsaðstæður kennarans þannig óbærilegar.
Ekki var gripið til neinna aðgerða innan skólans vegna málsins. Kennarinn var boðaður í viðtal hjá eineltisteymi bæjarfélagsins sem og María Ósk. Niðurstaðan samkvæmt lögmanni var að einelti hefði átt sér stað á vinnustaðnum.
María neitaði að tjá sig um málið við Fréttablaðið og vísaði ásökunum á bug.