Kennari gagnrýnir aumingjavæðingu

Skólahald á höfuðborgarsvæðinu hefur verið með ýmsu móti í morgun og vantar víða fjölda nemenda sakir þess óveðurs sem geysað hefur suðvestanlands fyrrti part dags. Í Garðaskóla í Garðabæ vantar líklega 75% nemenda í 10. bekk og spyr kennari þar hvort aumingjauppeldi sé normið.

Það er kennarinn Ragnheiður Stephensen sem orðað svo hugsanir sínar á þessum kalda og vindasama fullveldisdegi, en fésbókarfærsla hennar í morgun hefur vakið mikla athygli: \"Þeir sem eru mættir liggja núna í símunum og væla sig heim. Þau eru í prófum. Eru þetta skilaboðin sem á að senda starfskröftum framtíðarinnar? Ég treysti því að allir þessir foreldrar séu þá heima hjá sér líka fyrst að veðrið er svona vont!“  

Ragnheiður minnir á að Garðabær sé bæjarfélag þar sem hægt sé að ganga flest þannig að skortur á vel búnum bílum ætti ekki að koma í veg fyrir að börnin komist í skólann.

Garðbæingurinn Pétur Rúnar Heimisson svarar Ragnheiði í hópnum á hnyttinn og skemmtilegan hátt. Pétur Rúnar setur sig í spor fimmtán ára unglings en er sjálfur reyndar tvöfalt eldri: \"Ragga það er kalt úti og snjór að fjúka útum allt og batterýið á iPhone er ekki beint gert fyrir svoleiðis veður. Timberland skór og 66°norður úlpur eru heldur ekki alveg til að vera í svona vondu veðri, ég er meðvituð tískuvera - ekki Haraldur pólfari. Hvernig helduru að ég muni líta út á snapchat ef ég labba í þessu veðri með húfu? Hárið allt klesst og ekki flott. Rafvespan mín er hvort eða er ekki á nagladekkjum og því verð ég heima. Kv. einn 15 ára í Garðabæ.“