Kennarar ósáttir við vinnu í frímínútum

Grunnskólakennarar í landinu eru harla óánægðir með þá breytingu á kjörum þeirra að fá ekki lengur greitt sér­stak­lega fyr­ir gæslu þeirra á nem­end­um í frímínútum í öll­um til­vik­um eins og tíðkast hef­ur.

Eftirleiðis verður litið á gæsluna sem hluta af þeirra starfs­skyld­um sem þeir fá ekki greitt aukalega fyrir. Þessu andmæla kennarar og segja að í reynd sé verið að hafa af þeim laun.

Í ný­leg­um kjara­samn­ing­um grunn­skóla­kenn­ara er starfs­skyld­um þeirra skipt í þrjá liði, A, B og C. Und­ir A-lið falla kennsla og und­ir­bún­ing­ur og úr­vinnsla tengd henni og und­ir C-lið falla sér­stök verk­efni sem fal­in eru kenn­ar­an­um.

Önnur störf kenn­ara, þar á meðal gæsla, falla al­mennt und­ir B-lið vinnu­mats. Því er skóla­stjórn­end­um nú heim­ilt að skil­greina gæsl­una sem hluta af vinnu­skyldu kenn­ara. Greitt verður þó áfram fyr­ir gæslu í kaffi­tím­um kenn­ara og í yf­ir­vinnu að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.