Allar leiðir munu verða skoðaðar þegar kemur að endurskoðun á starfsemi Álversins í Straumsvík (ISAL) og meðal annars kemur til greina að loka því.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rio Tinto en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Rannveig Rist, forstjóri Álversins, hafi fundað með öllum starfsmönnum þess í morgun. Tilefni fundarins voru þrengingar í rekstri Álversins en eigandi þess, Rio Tinto, hefur kallað eftir endurskoðun á raforkusamningi vegna þessa sem gert er ráð fyrir að verði lokið á fyrri helmingi þessa árs.
Álverið óarðbært og ekki samkeppnishæft
Þá kemur fram í tilkynningunni að rekstur Álversins verði áfram óarðbær vegna ósamkeppnishæfs orkuverðs og sölulega lágs verðs á áli.
Alf Barrios, forstjóri Rio Tinto Aluminium segir að unnið hafi verið markvisst að því að bæta afkomu álversins en engu að síður sé það óarðbært og ekki samkeppnishæft í krefjandi markaðsaðstæðum vegna hás raforkukostnaðar.
„Rio Tinto mun kanna þær leiðir sem álverinu eru færar með það að markmiði að gera rekstur ISAL fjárhagslega sjálfbæran á ný.
Framlag ISAL til íslensks efnahagslífs er umtalsvert og við munum vinna náið með þeim sem eiga gagnkvæma hagsmuni að því að treysta framtíð ISAL, þ.m.t. ríkisstjórn, Landsvirkjun, starfsfólki, stéttarfélögum og sveitarfélaginu,“ segir Barrios.