Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að fullorðið fólk eigi að vera í skóm í vinnunni. Á Twitter síðu sinni segir hún meðal annars að það komi sér „núll á óvart að allir píratar séu með fótsvepp.“ Ýmsir blanda sér í umræðuna, meðal annars þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi varaþingmaður Pírata.
Tilefnið er upprunalegt tíst Katrínar, þar sem hún vitnar í frétt Mbl.is af gagnrýni Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, vegna klæðaburðar Björns Levís Gunnarssonar, þingmanns flokksins.
„Veistu, ég verð bara að segja virðulegi forseti mér er algjörlega orðið misboðið að þessi háttvirti þingmaður, sem kemur hér á sokkaleistunum upp í ræðupúlt, í sitthvorum sokknum, ítrekað, með pólitískt skítkast ...\" hafði Mbl.is eftir Bjarna á Alþingi á föstudag.
„Tek undir með mínum formanni hér. Fullorðið fólk á að vera í skóm í vinnunni,“ skrifar Katrín og fær fyrir það nokkuð dræm viðbrögð. „Kemur núll á óvart að allir píratar séu með fótsvepp,“ skrifar borgarfulltrúinn neðar.
„Hefði haldið að flokkur einstaklingsfrelsis myndi vera frjálslyndari en þetta; má viðkomandi ekki vera á sokkum ef hann vill og má ? Svo er þetta sokkatal alveg ótrúleg afvegaleiðing umræðunnar og enn einu sinni er hjólað í manninn en ekki í boltann þegar um Björn Leví er að ræða,“ skrifar Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona Vinstri grænna.
„Aldrei verið vandamál, nema hjá greinilega Birni Leví og öðrum pirötum.“
Þá svarar Már Örlygsson Katrínu og segir hana misskilja málið. „Þú misskilur. Það fólk sem sýður á sér tærnar í skóm innandyra allan daginn, er einmitt mun *líklegra* til að vera með fótsveppi.“ Katrín svarar honum þá til baka:
„Aldrei verið vandamál, nema hjá greinilega Birni Leví og öðrum pirötum.“
„Skil ég þig rétt að þú sért hér að reyna að nota klæðaburð og heilsufarsvandamál fólks til að gera lítið úr þeim sem pólitískum andstæðingum þínum? Er það semsagt svoleiðis sem \"fullorðið fólk\" gerir...?“ skrifar Viktor Orri Valgarðsson, fyrrverandi varaþingmaður Pírata.
Katrín virðist gefa lítið fyrir gagnrýnina en hún endurtístir tísti Viktors með sínu eigin, þar sem hún skrifar:
„Píratar: allir sjálfstæðismenn eru spilltir. Líka píratar: hvernig dirfistu að dylgja um að allir píratar séu með fótsvepp! Hér er Wikipedia linkur um þennan alvarlega heilsufarsvanda!“
Viktor svarar henni þá til baka:
„Nei, sko, það er sko ekki *móðgun* að dylgja um að Píratar séu með fótsvepp, það er *rosalega barnalegt*. Af því það er semsagt ekki persónulöstur að fá fótsvepp, ólíkt því að stunda eða styðja við spillingu. En haltu endilega áfram að sýna okkur hvernig fullorðið fólk hagar sér.“
Hefði haldið að flokkur einstaklingsfrelsis myndi vera frjálslyndari en þetta; má viðkomandi ekki vera á sokkum ef hann vill og má ? Svo er þetta sokkatal alveg ótrúleg afvegaleiðing umræðunnar og enn einu sinni er hjólað í manninn en ekki í boltann þegar um Björn Leví er að ræða
— Rósa Björk B (@RosaBjorkB) February 22, 2020
Mér finnst fullkomlega óásættanlegt að skrifa þetta á opinberum vettvangi, verandi borgarfulltrúi.
— byltINGA (@ingaausa) February 22, 2020
Nei, sko, það er sko ekki *móðgun* að dylgja um að Píratar séu með fótsvepp, það er *rosalega barnalegt*. Af því það er semsagt ekki persónulöstur að fá fótsvepp, ólíkt því að stunda eða styðja við spillingu. En haltu endilega áfram að sýna okkur hvernig fullorðið fólk hagar sér.
— Viktor Valgarðsson (@viktor888) February 22, 2020