Keflavíkurflugvöllur stefnir að því að hætta allri kolefnislosun fyrir árið 2050

Á 29. ársþingi ACI EUROPE, evrópudeildar Alþjóðasamtaka flugvalla, á Kýpur í morgun skrifaði Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undir skuldbindingu um að Keflavíkurflugvöllur muni hætta allri kolefnislosun í beinni starfsemi sinni í síðasta lagi árið 2050.

Þessi yfirlýsing var gefin út samfara því að ACI EUROPE tilkynntu um NetZero 2050-skuldbindingu rekstraraðila flugvalla með formlegum hætti. Hún felur í sér að flugvellirnir hætta kolefnislosun í sinni starfsemi í síðasta lagi árið 2050. Þessi sameiginlega skuldbinding, sem undirrituð var af 194 flugvöllum sem reknir eru af 40 rekstraraðilum í 24 löndum, er stórt skref í baráttu flugvalla gegn loftslagsbreytingum.

„Við á Keflavíkurflugvelli styðjum þessa yfirlýsingu. Með undirritun hennar lýsum við yfir ásetningi okkar í umhverfismálum með ótvíræðum hætti. Við höfum unnið markvisst að því að minnka kolefnaútblástur okkar síðan árið 2015 og höfum lokið við annað stig af fjórum í innleiðingu á kolefnisvottun ACA (Airport Carbon Accreditation).Það þýðir að við höfum kortlagt kolefnisspor okkar, gripið til aðgerða til að minnka kolefnislosun og sett markmið í þeim efnum,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia