Fjölgun ferðamanna hingað til lands virðist engan endi ætla að taka, eins og fram kom í kvöldfréttum RÚV í gær, en samkvæmt spá Isavia og sagt var frá hér á Hringbraut í gær fjölgar farþegum um Keflavíkurflugvöll um rúmlega 28% á næsta ári. Þetta þýðir að heildarfarþegafjöldi verður um 6,25 milljónir árið 2016. Og þessum farþegum þarf að sinna. IGS Ground Services annast ýmiss konar flugvallaþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þar á bæ þarf að fjölga starfsfólki fyrir næsta vor.
\"Fjöldinn sem kemur yfir sumartímann er svona 300 stöðugildi. En það eru miklu fleiri starfsmenn út af hlutastörfum. Þannig að næsta sumar gerum við ráð fyrir að vera með um 800 stöðugildi sem þýðir sjálfsagt hátt í 1.000 starfsmenn,“ sagði Gunnar S. Olsen, framkvæmdastjóri IGS Ground Services í kvöldfréttunum í gær.
En það er ekki bara hjá IGS sem þarf að fjölga fólki, svo áfram sé vitnað í frétt RÚV. Isavia þarf að fjölga um rúmlega 200 manns fyrir næsta sumar, og Airport Associates, sem sinnir ýmis konar afgreiðsluþjónustu, þarf einnig að fjölga um 200 manns. Þá þarf Fríhöfnin um 100 manns og Lagardère Travel Retail, sem sér um rekstur veitingastaða í flugstöðinni, þarf um 30 manns. Og flugfélögin þurfa líka að bæta við sig.
\"Við erum að fjölga um ríflega 300 manns fyrir næsta sumar og förum líklega upp í svona 2.200 starfsmenn þegar mest er,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair við frétatstofuna: \"Í heildina yfir árið líklega um 2.000 sem er nánast tvöföldun á því sem var árið 2009, fyrir 5-6 árum síðan.“
Svipaða sögu er að segja hjá WOW air. Þar þarf að bæta við um 360 starfsmönnum fyrir næsta vor. Upplýsingafulltrúi fyrirtækisins segir að það sé meira en tvöföldun á starfsfólki frá því í sumar.
Hjá þessum fyrirtækjum, sem tengjast flugvellinum með einum eða öðrum hætti, þarf því að fjölga um að minnsta kosti 1.500 manns fyrir næsta sumar. Þá eru ótalin ýmis minni fyrirtæki á vellinum.
MJög hefur dregið úr atvinnuleysi á Suðurnesjum sem var á annan tug prósenta eftir hrun en er nú svipað og á landinu öllu.