Í farþegaspá Isavia kemur fram að um 28,4% fleiri farþegar munu fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári en því metári sem nú er að líða, sem þýðir að heildarfarþegafjöldi verður um 6,25 milljónir á árinu 2016.
Útlit er fyrir að alls fari um 4,9 milljónir farþega um völlinn á þessu ári, sem er aukning um 25,8 prósent frá árinu 2014. Á tveimur árum er því gert ráð fyrir að farþegum fjölgi um tvær milljónir.
Þessar tölur Isavia gefa ekki til kynna að rúmar sex milljónir manna heimsæki Ísland á næsta ári, heldur er hver farþegi talinn við komuna til landsins og aftur þegar hann fer af landi brott. Þetta merkir að farþegar sem einungis stoppa á flugvellinum til þess að ferðast áfram til annars lands eru taldir með í þessum útreikningum..
Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia segir í samtali við RÚV í gær að bæta þurfi við starfsfólki til að bregðast við auknum fjölda farþega: \"Á sumrin bætum við við fjölda starfsfólks, þar eru um 200 manns sem koma inn aukalega á sumrin og það verður líklega meira næsta sumar,“ segir Guðni. Einnig sé aukin þörf á starfsfólki yfir vetrartímann. „Í fyrsta sinn höfum við verið að bæta við fólki eftir sumarið, við höfum verið að ráða inn starfsfólk núna í haust, og það er mikil fjölgun starfsfólks bæði hjá okkur og öðrum rekstraraðilum í flugstöðinni,“ segir Guðni.
Unnið er að stækkun Keflavíkurflugvallar um 16%. Guðni segir að einna mest stækki rými fyrir skiptifarþega, en einnig verður sett upp aðstaða fyrir nýjar breiðþotur Wow Air og Icelandair.