Dick’s Sporting Goods, ein stærsta verslunarkeðja Bandaríkjanna með útivistarvörur, hefur ákveðið að hætta að selja árásarriffla á borð við þann sem notaður var í skólamorðunum í Florida. Um leið sagðist verslanakeðjan ekki ætla að selja þeim sem væru yngri en 21 árs byssur. Ákvörðunin tekur þegar gildi í yfir 700 verslunum vítt og breitt um Bandaríkin.
\"Það var truflandi og dapurlegt að sjá það sem gerðist í Parkland. Okkur fannst við virkilega þurfa að gera eitthvað,\" sagði Ed Stack, forstjóri fyrirtækisins í Good Morning America, morgunþætti ABC sjónvarpsstöðvarinnar. Hann sagði að keðjan hefði komist að því að morðinginn í Parkland hefði keypt AR-15 hríðskotariffilinn sem hann notaði við skóladrápin í einni af verslunum Dick’s Sporting Goods.
\"Við gerðum allt rétt, allt sem var lagalega krafist af okkur við söluna, en samt gat hann keypt hjá okkur byssu,\" sagði Stack og að það væri greinilegt að eftirlitskerfin með byssukaupum væru ekki að virka.
Verslanakeðjan mun heldur ekki lengur selja skotfæri fyrir neins konar hríðskotariffla. jölmörg fyrirtæki hafa að undanförnu slitið tengsl sín við NRA, samtök byssueigenda, og sagt t.d. upp vildarsamningum við þau.