Kaupverðið lægra en markaðsvirði eignanna

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku hefur komist að þeirri niðurstöðu að kaupverð HB Granda á öllu hlutafé í Ögurvík sé lægra heldur en markaðsvirði eigna Ögurvíkur. Þó er tekið fram að ráðgefendur bankans geti ekki nema að takmörkuðu leyti metið á sjálfstæðan hátt möguleg samlegð af kaupunum og reiðir hún sig þar á stefnu stjórnenda HB Granda.

Þetta kemur fram í samantekt minnisblaðs sem nú hefur verið birt en á hluthafafundi HB Granda þann 16. október síðastliðinn var það samþykkt að fela Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka það verkefni að meta fyrirhuguð kaup.

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/kaupverdid-laegra-en-markadsvirdi-eignanna/150644/