Æðstu yfirmenn Kaupþingsbanka, þar á meðal Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson sem nú þegar sitja inni fyrir Al Thani málið, gætu fengið allt að níu ára dóm fullnýti dómari málsins refsiramma ásamt ákvæði í 72. grein almennra hegningarlaga um aukna refsingu.
Þetta kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem saksóknari flutti skýrslu sína um stóra markaðsmisnotkunarmálið frammi fyrir dómara, en fimm vikna vitnaleiðslum í málinu er lokið. Saksóknari fór þar fram á að dómari myndi nýta refsirammann til fulls í málinu svo sem full efni stæðu til, en með því gæti refsing Sigurðar og Hreiðars fyrir þetta mál og Al-Thani málið orðið að hámarki níu ár samtals
Í máli annarra ákærðu í málinu tiltók saksóknari ekki hvaða refsingu hann færi fram á, en alls er níu ákærðir í málinu.
Verjendur eiga sviðið í Héraðsdómi næstu daga og líklega alveg fram að helgi, en þá munu dómarar undirbúa úrskurð sinn sem væntanlega tekur fjórar til fimm vikur.