Kaupþingskaldhæðni örlaganna

Orðið á götunni er að ýmislegt spaugilegt megi finna í nýrri bók Þórðar Snæs Júlíussonar, Kaupthinking-bankinn sem átti sig sjálfur, þó svo viðfangsefnið sé grafalvarlegt. Í bókinni er dregin upp heildarmynd af því hvernig stærsti banki Íslandssögunnar var lítið annað en svikamylla fyrir æðstu stjórnendur bankans, sem virtust líta á hann sem persónulega gullgæs og þverbrutu reglur þvers og kruss, sem enduðu í einu stærsta gjaldþroti sögunnar.

Fjallað er um fangelsisvist þeirra sem tengdust Kaupþingi í bókinni og minnst er á þegar Ólafur Ólafsson, gjarnan kenndur við Samskip, hrapaði í þyrlu sinni suður af Nesjavallarvirkjun árið 2016. Þá var Ólafur að afplána dóm fyrir aðkomu sína í Al-Thani málinu. Í tilkynningu frá Ólafi kom fram að um útsýnisflug hefði verið að ræða og ætlunin hafi verið að lenda aftur í Reykjavík.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/ordid/2018/12/10/kaupthingskaldhaedni-orlaganna/