Kaupmáttur hefur aukist mikið

Í dag ræða Markaðspunktar Arion banka um laun og verðbólgu.

Íslendingar má segja hafa dottið í lukkupottinn því brattar launahækkanir hafa ekki enn ratað út í verðlagið og kaupmáttur hefur aukist mikið og á sama tíma hafa vextir lækkað.

Samspil ýmissa þátta skóp þessa þróun. Þar má nefna mikinn viðskiptakjarabata og styrkingu krónunnar og aukna samkeppni og umtalsverðann framleiðnivöxt.

Stærsti einstaki þátturinn er þó vöxtur ferðaþjónustunnar sem fái sáu fyrir að héldi áfram með enn meiri krafti en árið 2014.

En í næstu kjarsamningalotu þarf að verja þann árangur sem náðst hefur. Há laun grafa undan samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Fyrr en seinna lætur eitthvað undan - þá helst króna með tilheyrandi verðbólgu.

[email protected]