Kaupmáttur launa jókst um 5,7% á síðasta ári sem er mesta hækkun á einu ári frá árinu 1998, að því er fram kemur í samantekt Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að verðbólga hafi hrapað niður í sögulegar lægðir; ársverðbólga hafi aðeins mælst 0,8% í lok síðasta árs - og þakka forráðamenn SA þennan árangur hóflegum kjarsamningum frá því í desember 2013.
Ávinningur heimilanna af þróun undanfarinna mánaða sé mikill, en kaupmáttur einstaklings með meðaltekjur hafi þannig aukist um 225 þúsund krónur eftir skatt á árinu 2013 eða um 19 þúsund krónur á mánuði. Ef litið sé til hjóna með meðaltekjur hafi kaupmátturinn aukist sem samsvarar rúmlega þriggja mánaða matarútgjöldum meðalheimilis.
Kaupmáttur ekki aukist meira frá 1998
Fleiri fréttir
Nýjast