Kaup n1 á festi hf. heim­iluð

Sam­keppnis­eft­ir­litið hef­ur í dag heim­ilað kaup N1 hf. á Festi hf., en samrun­inn er háður skil­yrðum sem Sam­keppnis­eft­ir­litið og samrunaaðilar hafa gert sátt um. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu.

„Með skil­yrðunum skuld­binda samrunaaðilar sig til aðgerða sem miða að því að efla og vernda virka sam­keppni á eldsneyt­is- og dag­vörumörkuðum og bregðast við þeirri rösk­un á sam­keppni sem samrun­inn myndi ann­ars leiða til,“ seg­ir í til­kynn­ingu Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins.

Fram kem­ur að N1 skuld­bindi sig m.a. til þess að selja eldsneyt­is­stöðvar til nýs keppi­naut­ar, selja dag­vöru­versl­un Kjar­val á Hellu, auka aðgengi end­ur­selj­enda að birgðarými, dreif­ingu og eldsneyti í heild­sölu og tryggja sam­keppn­is­legt sjálf­stæði fé­lags­ins.

Nánar á

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/07/30/kaup_n1_a_festi_hf_heimilud/