Kaup­ir í skelj­ungi en sel­ur í hög­um

365 miðlar, fé­lag í eigu Ingi­bjarg­ar Pálma­dótt­ur, hef­ur keypt 3,02% hlut í Skelj­ungi og gert fram­virka samn­inga um kaup á 4,64% hlut til viðbót­ar. Keypti fé­lagið fyr­ir um 509 millj­ón­ir í fé­lag­inu og miðað við markaðsverð við lok­un markaða nem­ur virði fram­virku samn­ing­ana 783 millj­ón­um. Sam­tals er því um að ræða viðskipti sem geta numið tæp­lega 1.300 millj­ón­um.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar vegna viðskipt­anna kem­ur fram að gild­is­tími fram­virka samn­ings­ins sé til 30. apríl, en fé­lagið gæti þá átt 165 millj­ón hluti í fé­lag­inu, eða sem svar­ar 7,67% hlut í fé­lag­inu. Með því yrði 365 miðlar meðal stærstu hlut­hafa í Skelj­ungi og lang stærsti einka­fjár­fest­ir­inn. Miðað við hlut­hafal­ista við lok­un markaða í gær var Gildi líf­eyr­is­sjóður stærsti hlut­haf­inn með 9,2% og Kvika banki með 8,11% í Skelj­ungi.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2019/04/11/kaupir_i_skeljungi_en_selur_i_hogum/