Fasteignamarkaðurinn á Íslandi hefur sjaldan eða aldrei verið ungu fólki jafn erfiður og nú um stundir þegar leiguverð hefur hækkað um 50% á þremur árum og íbúðaverð rokið lóðrétt upp.
Í fasteignaþættinum Afsal á Hringbraut í gærkvöld var rætt við ungt par, þau Selmu Rut Ingvarsdóttur og Pétur Kjartan Kristinsson, sem sögðu frá því hvernig þeim tókst að kaupa sína fyrstu eign, en þáttinn er hægt að nálgast inni á hringbraut.is. Þar skipti aðstoð frá foreldrunum sköpum en sjálf segjast þau hafa það mun betra fjárhagslega, miðað við það ef þau væru enn á leigumarkaði.
Pétur Kjartan segist mæla með því að ungt fólk láti bara ,,vaða” og reyni að fara af stað með eignarkaup, þau komi alltaf mun betur út. Sjálf keyptu þau í Mosfellsbæ og miðuðu við að 20 milljóna króna kaupverð væri raunhæft fyrir fyrstu eign. Selma Rut og Pétur Kjartan segjast nú vera farin að skoða í kringum sig til að kaupa stærri eign. Þau treysta þá á að eignarmyndunin, sem þegar hefur myndast í íbúðinni þeirra, geri þeim kleift að geta stækkað við sig.
Fasteignaþátturinn Afsal er sendur út vikulega á fimmtudagskvöldum í umsjá rakelar Sveinsdóttur og alltaf sjáanlegar á vef Hringbrautar.