Þýska neytendastofnunin, Stiftung Warentest, hefur gert ítarlegar prófanir á mörgum af frægustu og dýrustu hrukkukremum heims. Niðurstaðan: Að kaupa þau er sóun á fé, hrukkukrem virka ekki!
Gildir einu hvort kremið er rándýrt eðe ekki eftir því sem fram kemur í rannsókninni.
Í rannsókninni báru 270 konur daglega krem á hálft andlit sitt, kvölds og morgna, hefðbundið rakakrem fór á hinn helming andlitsins.
Tilraunin stóð yfir í fjórar vikur en flestir hrukkukremsframleiðendur segja að sá tími dugi til að ná fram mun.
Ríkisútvarpið sagði fyrst fjölmiðla hér á landi frá þessari rannsókn en kremin sem notuð voru eru frá Diadermine, Estée Lauder, Lancaster, Lavera L\ Oréal