Katrínu finnst gaman að vera ráðherra

Í aðdraganda forsetakosninga fyrir tveimur árum horfðu margir til Katrínar Jakobsdóttur sem næsta forseta lýðveldisins.

„Ég hafði aldrei sjálf neinn metnað til þess að verða forseti. En mér þótti vænt um að fá hvatningu og finna stuðning frá alls konar fólki sem ég met mikils og virði mjög mikils,“ segir Katrín. Þess vegna hafi hún ákveðið að hugsa málið. „En það var einfaldlega þannig að um leið og ég byrjaði að hugsa þetta sem alvöru möguleika fékk ég slíkan hnút í magann að ég svaf ekki í nokkra daga. Svo hugsaði ég að ef þetta væri það sem gerðist þegar ég hugsaði um þetta þá ætti ég ekki að gera þetta.“

Nánar á visir.is

http://www.visir.is/g/2018180608900/segist-lida-vel-i-rikisstjornarsamstarfinu-