Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er sá einstaklingur sem hlýtur flest atkvæði í skoðanakönnun Vísis þar sem spurt er hvern lesendur vilja helst sjá sem næsta forseta Íslands.
Þó eru nokkuð fleiri sem segjast frekar vilja sjá „einhvern annan“ en þá þrettán mögulegu og staðfestu forsetaframbjóðendur sem Vísir tók saman fyrir könnunina. Katrín hlaut 2973 atkvæði, eða tuttugu prósent, en 3130 sögðust helst vilja sjá einhvern annan, eða 21 prósent.
Ekki er um vísindalega könnun að ræða, heldur var lesendum Vísis boðið að segja sína skoðun í grein sem birt var á laugardagskvöld. Tæplega fimmtán þúsund atkvæði bárust. Hægt var að velja einhvern af þrettán mögulegum eða staðfestum frambjóðendum sem Vísir tók saman eða valkostinn „einhvern annan,“ svo vitnað sé skrifa vefjarins um könnunina.
Árni Björn Guðjónsson og Hildur Þórðardóttir voru ekki meðal þeirra sem í boði var að kjósa en þau hafa tilkynnt um framboð sitt til forseta frá því að greinin var birt.
Sem fyrr segir, völdu flestir valkostinn „einhvern annan“ en Katrín hlaut flest atkvæði einstaklinga. Katrín er ítrekað nefnd í tengslum við forsetaframboð en hefur lýst því yfir að hún hafi engar áætlanir um að bjóða sig fram, án þess þó að útiloka það alveg.
Andri Snær Magnason rithöfundur fylgir næst á eftir með 2404 atkvæði eða sextán prósent. Andri sagðist í föstudagsviðtali Fréttablaðsins fyrir helgi ekki útloka framboð vegna áhugaverðra tíma sem nú eru uppi.
Jón Gnarr, dagskráarstjóri og fyrrverandi borgarstjóri, hlýtur níu prósent atkvæða, Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur sjö og þeir Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi, og Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, sem hefur sagt „yfirgnæfandi líkur“ á því að hann bjóði sig fram, hljóta fimm prósent hvor um sig.