Katrín vill þak á leiguverð

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna vill að sett verði þak á leiguverð á íslenskum húsnæðismarkaði. Hún segist hitta æ fleira fólk á öllum aldri sem lýsi erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði og að viðbrögð stjórnvalda við þessu ástandi hafi ekki verið sannfærandi.

Hún segir í grein sem hún skrifar í Fréttablaðið í dag að hin svokallaða leiðrétting hafi til að mynda engu breytt fyrir leigjendur sem eru um þriðjungur heimila landsins.

Í greininni segir Katrín að húsnæðismál séu eitt brýnasta viðfangsefni stjórnmálanna um þessar mundir: \"Eftir efnahagshrunið, þar sem byggingaiðnaður hrundi og margir misstu húsnæði sitt á sama tíma, eru æ fleiri sem eiga í erfiðleikum með að koma sér þaki yfir höfuðið. Ég hitti æ fleira fólk á öllum aldri sem lýsir erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði; ungt fólk sem ekki fær greiðslumat til fasteignakaupa en greiðir eigi að síður himinháa leigu, eldra fólk sem greiðir háan hluta launa sinna í leigu af örsmáu húsnæði og svo mætti lengi telja.“

Henni finnst stjórnvöld ekki hafa brugðist við þessu ástandi með sannfærandi hætti. Hin svokallaða leiðrétting hafi ekkert gert fyrir leigjendur og beðið hafi verið eftir húsnæðisfrumvörpum Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra. Þau spil sem sýnt hafi verið á í þessum efnum hafi valdið vonbrigðum og ekkert þessara mála hafi klárast: \"Staðreyndin er sú að leiguverð hefur hækkað mjög og öryggi leigjenda er lítið. Margir kjósa að leigja út til skemmri tíma fyrir hærra verð. Félagsleg úrræði á leigumarkaði duga ekki til og leigusalar hafa rúmar heimildir til að hækka leiguverð á leigjendur sína án nokkurs fyrirvara eins og nýleg dæmi frá Reykjanesbæ sýna.

Lausnin getur ekki verið sú að ungt fólk búi lengur heima hjá pabba og mömmu og pabbi og mamma eru ekki heldur alltaf í aðstöðu til þess að hýsa heilu fjölskyldurnar. Það þarf alvöru úrræði,“ skrifar Katrín í grein sinni í dag.