Verið að velja úr „hlaðborði aðgerða“ í húsnæðismálum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að fyr­ir­hugað bann við 40 ára verð­tryggðum jafn­greiðslu­lán­um, sem samið var um í hinum svoköll­uðu lífskjarasamn­ingum í síð­ustu viku, verði að hald­ast í hendur við það að ný lán fyrir tekju­lága hópa komi fram.

Sem stendur er sér­stak­lega verið að horfa á svokölluð hlut­deild­ar­lán, eða eig­in­fjár­lán eins og þau voru kölluð af starfs­hópi félags- og barna­mála­ráð­herra sem skil­aði til­lögum í síð­ustu viku, sem fela í sér að ríkið verði í raun meðeigandi að íbúðum sem lán­tak­end­urnir kaupa.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við forsætisráðherra í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.

Hér er að finna brot úr viðtalinu:

Katrín segir að gagna­grunn­ur­inn sem stjórn­völd kynntu nýlega, Tekju­sagan, hafi dregið þetta mjög vel fram, ann­ars vegar þróun ráð­stöf­un­ar­tekna og hins vegar gefnar stærðir hvað varðar hús­næð­is­stuðn­ing, barna­bætur og annað slíkt. „Þar kemur þetta mjög skýrt fram með tekju­lága hóp­inn sem er á leigu­mark­aði og er að nýta allt of stóran hluta af sínum ráð­stöf­un­ar­tekjum í hús­næð­i.“

Það sé þannig að meiri­hluti fólks á Íslandi hafi hug á því að kom­ast í eigin hús­næði. „Þar hafa verið þessir þrösk­uldar fyrir ungt, tekju­lágt fólk.“

Vegna þessa var kynnt það sem Katrín kallar „hlað­borð aðgerða“ á vegum starfs­hóps á vegum félags- og barna­mála­ráð­herra í lok síð­ustu viku. 

Nú standi yfir vinna hjá rík­is­stjórn­inni að velja þær aðgerðir af þessu hlað­borði sem hún telur væn­leg­astar til þess að lækka þrösk­ulda tekju­lágra hópa inn á húsnæðis­mark­að. „Það hangir auð­vitað saman við það sem við boðum um að draga úr vægi verð­trygg­ing­ar. Að það séu ein­hverjir aðrir val­kostir fyrir fólk.“

Katrín segir stefnt að því að nýju lánin verði ekki í boði fyrir alla og að vinna sé framundan með aðilum vinnumarkaðarins við að skil­greina hvaða hópar muni eiga rétt á þeim.

Aðspurð um hvort að fyr­ir­hug­aðar aðgerðir stjórn­valda í hús­næð­is­málum séu fjár­magn­aðar sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun segir Katrín að það sé horft til Íbúðalána­sjóðs sem aðila sem hafi ákveðnu félags­legu hlut­verki að gegna þar. „Þannig að þetta birt­ist kannski ekki sem bein útgjöld af hálfu rík­is­ins í fjármála­á­ætlun heldur í gegnum Íbúðalánasjóð.“