Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, tók af allan vafa um framboð hennar til þings í komandi kosningum, þegar hún var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í Þjóðbraut í sjónvarpi Hringbrautar í morgun.
Katrín sagðist þar vera hlynnt kosningabandalagi núverandi stjórnarandstöðuflokka.
Hún er mjög gagnrýnin á núverandi ríkisstjórn, ekki síst í skattamálum. Katrín sér enga ástæðu til að ríkið fari í einkavæðingu einsog ástatt er um í samfélaginu, þeirri miklu tortryggni sem nú ríkir