Katrín útskýrir af hverju hún var með umdeildan trefil um hálsinn

Það vakti mikla athygli í vikunni þegar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var með trefil merktan Liverpool. Var þetta sama dag og Liverpool tók á móti Napoli í Meistaradeildinni.

Var Katrín harðlega gagnrýnd fyrir trefilinn af fjölda fólks en stuðningsmenn Liverpool voru í skýjunum með framgöngu forsætisráðherra. Katrín útskýrði ástæðuna í samtali við Gísla Martein í þættinum Vikan. Þar sagði Katrín.

,,Mér þykir mjög vænt um þennan trefil, eiginmaðurinn minn gaf mér hann.“