Katrín um bréfið: „Stórfurðulegt“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir stórfurðulegt að útgerðarfyrirtækið Samherji hafi skipað Arnar Þór Stefánssyni, lögmanni, að senda bréf á Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra. Í bréfinu, sem er langt og skrifað á háfleygan hátt, er Lilja krafin svara um hvað hún hafi meint með því að segja að Samherji hafi gengið „of langt“.

„Mér finnst þetta bara stórfurðulegt, þing­menn tjá sín­ar skoðanir hér og hafa fullt frelsi til þess og mér finnst bara stórfurðulegt að senda slíkt bréf til þing­manns,“ sagði Katrín í samtali við Mbl. „Hún hef­ur auðvitað fullt frelsi til að sjá sín­ar skoðanir. Þannig að mér finnst þetta væg­ast sagt und­ar­legt.“

Lilja hefur ekki svarað bréfinu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur ekki viljað veita viðtöl um afsökunarbeiðnina sem fyrirtækið sendi um helgina. Ekki er því vitað hvern var verið að biðja afsökunar, á hverju eða hvers vegna.