Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að með áætlaðri uppbyggingu hernaðarmannvirkja Bandaríska flughersins á Keflavíkurflugvelli sé ekki verið að tryggja varanlega veru hersveita á landinu. Bandarísk yfirvöld áætla að setja rúmlega sjö milljarða króna í að stækka og breyta ákveðin svæði á Keflavíkurflugvelli. Í samtali við RÚV bendir Katrín á að aukin hernaðarumsvif við norðurslóðir séu áhyggjuefni.
„Ég hef auðvitað áhyggjur af því, ekki síst þegar við horfum bæði til norðurhafa og líka norðurslóða, sem hingað til hefur ríkt ákveðin þverþjóðleg samstaða um að þar eigi að halda slíkri hernaðarvæðingu í lágmarki,“ segir Katrín.
Þrátt fyrir rúmlega 7 milljarða fjárfestingu segir Katrín að ekki verði aftur herseta.
„Nei, ég myndi ekki segja það. Það mun ekki koma til að hér verði aftur herseta, alla vega ekki á meðan við erum í ríkisstjórn, en það liggur hins vegar fyrir að með þessari uppbyggingu og í rauninni undanfarin ár hefur viðveru hermanna á varnarsvæðinu í Keflavík og hersvæðinu í Keflavík, hún hefur aukist,“ segir Katrín.
Íslensk stjórnvöld munu leggja til 300 milljónir króna vegna framkvæmdanna. Áætlað er að framkvæmdir hefjist árið 2020.