Katrín segir ó­víst að hún fundi með pence

Aukinni víg­væðingu í Norður­höfum og á Norður­slóðum var mót­mælt ein­róma á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna sem fram fór í dag á Hótel Skafta­felli í Ör­æfum. Þá var ham­fara­hlýnun og veður­far­söfgum vegna loft­lags­breytinga lýst sem brýnasta pólitíska við­fangs­efni sam­tímans.

Katrín Jakobs­dóttir, for­sætis­ráð­herra og formaður VG, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að of snemmt sé að segja til um hvort hún muni mótmæla við­komandi víg­væðingu Norður­slóða á fundi sínum með Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkjanna, þar sem ó­ljóst sé hvort af fundinum verði.

Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.

„Nú er al­gjör­lega ó­víst hvort verði af þeim fundi. En ég tók þessi mál til að mynda upp á fundi með Mike Pompeo, utan­ríkis­ráð­herra Banda­ríkjanna, þegar hann kom ­hingað til lands og fór sér­stak­lega yfir þessa stöðu,“ segir Katrín

Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Fréttina má lesa í heild sinni hér.