Katrín segir eiginmann sinn hafa spillt sonum þeirra: „Ekki sinnt uppeldi barnanna nægilega vel“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir eiginmann sinn, Gunnar Sigvaldason, hafa spillt sonum þeirra þremur. Katrín var gestur Valtýs Björns í hlaðvarpinu Mín skoðun.

Katrín er mikill aðdáandi Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, hefur hún meðal annars mætt með trefil liðsins á Alþingi. Gunnar er hins vegar aðdáandi Manchester United.

„Ég hef nátt­úru­lega ekki sinnt upp­eldi barn­anna nægi­lega vel þannig að þeir eru Manchester United menn. Maður­inn minn er Manchester United maður. Hann hef­ur eytt meiri tíma með börn­un­um. Hann er bú­inn að eyðileggja þetta,“ sagði Katrín.

Hún er hrifin af þjálfara liðsins, Jurgen Klopp. Segir hún að uppáhaldsleikmenn sínir séu Sadio Mane og Mo Salah.