Katrín ræður höllu og kolbrúnu

Halla Gunnarsdóttir, fyrrverandi aðstoðamaður Ögmundar Jónassonar, hefur verið ráðin ráðgjafi Katrínar Jakobsdóttur og mun leiða starf stýrihóps um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi .

Meginhlutverk hópsins er að beita sér fyrir framsæknum og samhæfðum aðgerðum stjórnvalda gegn kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri og kynbundinni áreitni og að Ísland sé í fremstu röð í baráttunni gegn hvers kyns kynbundnu ofbeldi, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins

Á vef forsætisráðuneytisins er líka skýrt frá ráðningu Kólbrúnar Halldórsdóttur sem verkefnisstjóra fyrir forsætisráðuneytið í tengslum við hátíðarhöldin vegna 100 ára fullveldis Íslands.

Halla hóf störf 1. mars og hefur aðsetur í forsætisráðuneytinu.