Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs, er gestur Jóns G. í kvöld. Þau ræða að sjálfsögðu Hildi Guðnadóttur tónskáld og afrek hennar að vinna Óskarinn. „Við erum öll að rifna úr stolti,“ segir Katrín og bætir því við að Hildur sjálf og árangur hennar séu mikil hvatning fyrir konur til að láta til sín taka – og í sér heyra, eins og Hildur kvatti til á verðlaunahátíðinni. „Það var einstakt hvernig hún lauk ræðu sinni þegar hún tók við verðlaununum.“
Þau Jón G . ræða að sjálfsögðu Viðskiptaþingið sem verður á morgun en það ber yfirskriftina Á grænu ljósi. Katrín lætur af formennsku í Viðskiptaráði á morgun eftir setu í tvö kjörtímabil, fjögur ár. Sem formaður hefur lagt mikla áherslu á fjölbreytileika í atvinnulífinu og að fólk setji sér stefnu. „Fjölbreytileikinn merkir hagsæld,“ segir Katrín og bætir við: „Viljum við bara hafa eina trjátegund í skóginum?“