Katrínu olgu hafnað

Mik­il gremja er kom­in upp í hlut­hafa­hópi greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­is­ins Borg­un­ar vegna af­skipta Birnu Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Íslands­banka, af því hver myndi taka við stöðu for­stjóra í Borg­un þegar ljóst var að Hauk­ur Odds­son, þáver­andi for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, myndi láta af störf­um.

Þannig mun Birna hafa sett sig í sam­band við stjórn­ar­menn í fyr­ir­tæk­inu, sem er að meiri­hluta í eigu bank­ans, og þrýst á að Katrín Olga Jó­hann­es­dótt­ir, formaður Viðskiptaráðs Íslands, yrði ráðin í starfið.

Sú beiðni gekk þvert á þann vilja stjórn­ar­inn­ar að ráða Sæ­mund Sæ­munds­son til starfa. Varð niðurstaðan sú að Sæmund­ur var ráðinn, þrátt fyr­ir að Íslands­banki til­nefni þrjá stjórn­ar­menn af fimm hjá Borg­un, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta Morg­un­blaðinu í dag.