Katrín og irma á meðal 100 áhrifamestu á sviði jafnréttismála í heiminum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Irma Erlingsdóttir, dósent við Háskóla Íslands og forstöðumaður Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og RIKK – rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum, eru á meðal 100 áhrifamestu einstaklinga heims þegar kemur að jafnréttismálum samkvæmt nýjum lista Apolitical. Þar eru þær í hópi með heimsþekktu baráttufólki fyrir jafnrétti kynjanna, þeirra á meðal Michelle Obama, Ruth Bader Ginsburg og Denis Mukwege.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.

Apolitical er alþjóðlegur fræðslu- og stefnumótunarvettvangur fyrir ríkisstjórnir og aðra opinbera aðila. Er þetta í annað sinn sem Apolitical birtir lista yfir þá einstaklinga sem þykja hafa skarað fram úr í jafnréttismálum með rannsóknum, stefnumótun og málefnabaráttu. Alls bárust um 9.000 tilnefningar á listann víða að úr heiminum frá sérfræðingum á sviði jafnréttismála innan ríkisstjórna, alþjóðastofnana eins og Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegra hreyfinga sem berjast fyrir jafnrétti eins og Women Deliver, Women in Global Health og Women for Climate Justice.

Á lista Apolitical er að finna stjórnmálakonur, vísindamenn, opinbera starfsmenn og aðgerðasinna sem að mati Apolitico stuðla með störfum sínum að breytingum í átt til aukins jafnréttis og bjartari framtíðar í heiminum.

Á meðal þeirra sem eru á listanum í ár, auk Katrínar og Irmu, eru nýkrýndur friðarverðlaunahafi Nóbels, kvensjúkdómalæknirinn Denis Mukwege, hæstaréttardómarinn Ruth Bader Ginsburg,  Michelle Obama, stofnandi Girls Opportunity Alliance og fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, og Christine Lagarde, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.