Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, munu hittast á fundi í tengslum við heimsókn hans til Íslands. Útlit hafði verið fyrir að Katrín myndi ekki hitta Pence þar sem hún verður ræðumaður á þingi Norrænu verkalýðssamtakanna um svipað leyti og Pence heimsækir landið.
„Fyrir nokkrum mánuðum samþykkti ég að vera ræðumaður á þingi Norrænu verkalýðssamtakanna, sem einmitt á sér stað þessa daga, og ég hef ekki séð ástæðu til þess að breyta þeirri dagskrá minni,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið þann 18. ágúst síðastliðinn. Í gær var hins vegar tilkynnt um það að Katrín hafi séð sér fært um að breyta dagskrá sinni og muni hitta Pence.
Katrín hefur látið hafa eftir sér að hún sé ósammála skoðunum Pence í miklum grundvallaratriðum, en hann hefur til að mynda beitt sér gegn réttindum samkynhneigðra í Bandaríkjunum.
Fundurinn mun eiga sér stað í húsi Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli að kvöldi 4. september, en þann sama dag kemur Katrín til landsins af fundum sínum í Svíþjóð og Danmörku í tengslum við þing Norrænu verkalýðssamtakanna.