Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna útilokar ekki forsetaframboð að því er fram kemur í viðtali við hana í helgarblaði DV í dag. Katrín segir að henni þyki það einfaldlega vera skylda sín að leiða hugann að þeim möguleika í ljósi þess að fólk hafi byrjað að máta hana í embættið.
Katrín fer víða í viðtalinu en meðal annars ræðir hún við blaðamann DV um þá staðreynd að hún hefur ítrekað verið valinn vinsælasti stjórnmálamaður landsins og sá stjórnmálamaður sem fólk ber einna mest traust til: \"Mér finnst þetta auðvitað jákvætt en þetta er líka rosa pressa. Mér finnst mikilvægt að bregðast ekki þessu trausti. En auðvitað eru skiptar skoðanir á mér eins og öllum öðrum. Ég hef alveg fengið harða gagnrýni, sem fylgir því að vera til og vera í stjórnmálum. Þótt mér þyki mjög vænt um traustið þá vil ég ekki leggja of mikið upp úr því. Þetta getur verið hverfult og hlutirnir geta breyst mjög hratt í pólitík. Ég reyni bara að halda mínu striki og eini mælikvarðinn eru kosningar hverju sinni,\" segir hún við blaðið.
Katrín segir að hún eigi erfitt með að sjá sig fyrir sér á Bessastöðum, hún sé ansi ung og eigi ung börn. Hún hafi satt að segja ekki stefnt á forsetastól: \"En auðvitað verð ég upp mé mér að einhverjum skuli detta þetta í hug. Þó mér finnist það eiginlega ótrúlegt að einhverjum skuli detta þetta í hug,segir Katrín en viðurkennir samt að hafa leitt hugann að möguleikanum. Henni finnist það einfaldlega skylda sín að hugsa málið,\" segor formaður VG í ítarlegu viðtali sem birtist við hana í helgarblaðinu í dag.