Agatha P, fréttamaður Stóru Málana hér á Hringbraut, spurði Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, spjörunum úr að loknum landsfundi Vinstrihreyfingarnar Græns framboð. Katrín var á fundinum kjörinn formaður flokksins og Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður.
Í samtali við Agöthu sagði Katrín að tæknin hefði aðeins verið að stríða þeim á landsfundinum. Upprunalega átti að kjósa rafrænt en kerfið virkaði ekki eins og það átti að gera. Þá var gripið til þess ráðs að láta fólk kjósa forystu flokksins með spjöldum. Voru allir fjölmiðlar reknir úr salnum en þá gleymdist að slökkva á lifandi streymi sem var í gangi af fundinum og var því hægt að sjá kosninguna fara fram á netinu.
Agatha spurði einnig Katrínu hvort Guðmundur Ingi, nýkjörinn varaformaður VG, væri sætasti ráðherrann. Svaraði hún því með að setja nei spjaldið á loft. Katrín bætti síðar við:
„Ég vona að hann [Guðmundur] sé ekki að horfa. Getum við tryggt það einhvern veginn að hann sjái þetta ekki?“
Þá var hún spurð í framhaldi hvort hún taldi sig sjálfa vera sætasta ráðherrann og fór þá já spjaldið á loft.
Hér að neðan má svo sjá allt viðtalið við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra.