Katrín jakobs óráðin um þingsetu

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, gefur ekki upp í svari við fyrirspurn Kjarnans hvort hðú ætli að bjóða sig fram til þings þegar kosið verður.

Katrín er í hópi örfárra þingmanna sem villja ekki svara hvort þeir hyggist bjóða sig fram eða ekki.

Þar sem Katrín er formaður stjórnmálaflokks sem mælist nú með um 20% fylgi þykir svar hennar sæta tíðindum. Hún nýtur mestra vinsælda skv. Gallup sem næsti forsætisráðherra. Á facebook hafa meðal þjóðmálarýnenda nú þegar komið fram kenningar hvort hugsanlegt sé að Katrín muni endurskoða fyrri ákvörðun um að fara ekki fram til forseta.

Sex aðrir þingmenn vilja ekki svara spurningum Kjarnans, þeir Össur Skarphéðinsson, Birgir Ármannsson, Ögmundur Jónasson, Vilhjálmur Bjarnason, Kristján Möller og Haraldur Einarsson. Langflestir núverandi þingmenn munu gefa kost á sér áfram en könnun Kjarnans er fróðleg og má sjá í heild hér.