Katrín Jakobsdóttir, formaður VG sem Stundin kynnir í dag að njóti langmesta fylgisins til Bessastaða ef hún ákveður að fara fram, greinir frá því á eigin facebook-síðu að hún hafi flogið með nýrri Bombardier vél Flugfélags Íslands frá Akureyri í gær eftir fund í Háskólanum á Akureyri um stjórnarskrármál.
Gærdagurinn var fyrsti dagurinn sem nýja vélin, sú fyrsta af þremur, var notuð í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Akureyrar en hún er aðeins rúman hálftíma að fljúga á milli og tekur mun fleiri farþega en Fokkervélarnar sem lagt verður í sumar.
Katrín lætur vel af fluginu. \"
Þetta var mjög erlendis allt saman!\" Segir Katrín glaðhlakkalega.
Ítarlegt viðtal er við Katrínu í Stundinni í dag þar sem hún fer m.a. yfir hvaða mál forseti getur sett á oddinn.
Hafa sumir túlkað viðtalið sem svo að senn sé að bíða frétta af framboði Katrínar Jakobsdóttur til forseta.