„Stærðin er ekki allt, eins og Ísland fékk að kynnast þegar það spilaði á minnsta leikvangi Evrópumótsins 2022 í gær.“ Svona hefst grein á vef breska ríkissjónvarpsins, BBC, sem birt var í gær.
Aðeins voru tæplega fjögur þúsund stuðningsmenn á leik Íslands og Belgíu á Akademíuvellinum í Manchester í gær. Meirihluti var íslenskur. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
BBC segir að það hafi verið „hátíðarstemning“ á meðal íslenska stuðningsfólksins.
Þá ræddi miðillinn við Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. „Það er frábært að vera mætt á Evrópumótið,“ segir Katrín.
„Ég var fimm ára þegar ég byrjaði að fylgjast með enska boltanum ásamt pabba mínum. Kvennafótbolti var ekki algengur á Íslandi fyrir 25 árum síðan. Þá hættu margar þegar þær urðu unglingar. Nú er eðlilegt að þær haldi áfram og eigum við leikmenn sem spila í Evrópu og Bandaríkjunum.“
Katrín er ánægð með vöxt kvennaknattspyrnu í heiminum. „Það er mikilvægt fyrir mig sem femínista, sem berst fyrir kvenréttindum, að stelpur eigi val um að spila fótbolta. Við sjáum að á alþjóðavísu hefur kvennaknattspyrna aldrei fengið meiri athygli.“
Næsti leikur Íslands á EM er á fimmtudag gegn Ítölum.