Katrín í stjórnarráðið

Allra síðustu daga hafa fjórar skoðanakannanir, um fylgi stjórnmálaflokkanna, verið birtar. Fyrr í dag mátti lesa á hringbraut.is hver staða flokkanna var þegar meðaltal þriggja kannanna var reiknað.

Síðan hefur MMR birt nýja könnun. Fátt breytist við hana.

Mögulegar ríkisstjórnar í ljósti stöðunnar er nokkrar.

Fyrsti möguleiki. Ljóst er að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er fallin. Líklegt má telja að fyrsti kostur til myndunar meirihlutastjórnar verði fjögurra flokka stjórn þar sem að koma Píratar, með þrettán þingmenn, VG með ellefu, Viðreisn með sjö og Björt framtíð með sex. Alls 37 þingmenn.

Tíu ráðherrar verða þá; Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Birgitta Jónsdóttir menntamálaráðherra, Benedikt Jóhannesson (hugsanlega utanþingsráðherra) fjármálaráðherra, Óttarr Proppé innanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir sjávarútves- og landbúnaðarráðherra, Smári McCarty utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir heilbrigðisráðherra, Björt Ólafsdóttir félagsmálaráðherra, Ásta Guðrún Helgadóttir umhverfisráðherra og Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir iðnaðarráðherra. Steingrímur J. Sigfússon yrði forseti Alþingis.

Aðrir möguleikar: Þar sem annar og þriðji stærsti flokkurinn, það er Píratar og VG, hafa nánast gefið út að þá langi lítt í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki er ólíklegt að hann komist að í næstu ríkissttjórn.

Verði breyting þar á eru nokkrir möguleikar á þriggja flokka stjórnum með þátttöku Sjálfstæðisflokks (15 þingmenn) og Pírata (13 þingmenn) og eða VG (11 þingmenn). Nærtækust væri ríkisstjórn þessara þriggja flokka, með alls 39 þingmenn. Aðrir möguleikar eru nokkrir.

Hér er staða flokkanna miðað við nýjustu upplýsingar:

 365GallupMBLMMRMeðaltalÞingmenn
A-listi Björt framtíð8,27,77,78,27,96
B-list Framsóknarflokkur8,59,88,69,29,06
C-listi Viðreisn7,312,411,410,210,37
D-listi Sjálfstæðisflokkur22,722,621,521,422,015
P-listi Píratar22,818,317,519,619,513
S-listi Samfylking7,37,16,99,07,65
V-listi Vinstri græn15,114,517,714,515,511

 Félagsvísindastofnun vann könnunina fyrir Morgunblaðið.

-sme