Katrín heima hjá pírötum?

 „Það er hreint ótrúlegt að ekki er meiri umræða og greiningar á þessum sláandi pólitísku breytingum í landinu,“ segir Kristinn Hrafnsson blaðamaður.

Hann vitnar þar til enn einnar könnunar Gallup sem mælir 35% fylgi Pírata sem eru einhver mestu tíðindi síðari tíma sögu að mati Kristins, enda hafa Píratar sýnt stöðugleika í mælingum í hálft ár.

„40 prósent kjósenda hafna ,,fjórflokknum”. Vissulega er píratafylgið mögulega gult spjald sem ekki endar í kjörseðlakrossum en þetta eru makalaus tíðindi sem hafa aðeins hliðstæðu í Besta flokks grínframboðinu í borginni. Þetta eru sláandi skilaboð og svo hávær krafa um breytingar að hún verður ekki umflúin. Hátt í helmingur kjósenda er í fullkomnu andófi,“ skrifar Kristinn á fésbók.

Hann sneiðir að formanni Framsóknarflokksins og menntamálaráðherra í færslu sinni. „Það er alveg sama þó að stjórnarflokkarnir búi til leiksýningar, boði linnulítið heimssöguleg tíðindi, keppist við að draga kanínur úr hattinum og gefi peninga; staðan breytist ekki. 
Stjórnarflokkarnir þumbast bara áfram og þykir nú töffaralegt að pönkast í RUV sem er aðeins gert fyrir glataða þriðjunginn sem virðist hvort eð er llímfastur við spillingarflokkana tvo, yst til hægri.“

Kristinn Hrafnsson, sem lengi starfaði á Rúv, er ómyrkur í máli gagnvart stjórnarflokkunum. „Það er alveg ljóst að þeir flokkar stóla á það eitt að lofa peningagjöfum og beita populískum áróðri á grunni ótta og útlendingahaturs, þegar nær dregur kosningum. Og víst kann það að virka.“

Og ekki er gæfulegra ástandið á hinum vængnum að mati blaðamannsins sem í seinni tíð hefur starfað fyrir Wikileaks: „Hægri jafnaðarflokkarnir tveir eru í tilvistar- og forystukreppu og virðast eiga litla möguleika á að ná vopnum sínum. Björt framtíð er þegar dottin niður fyrir 5% þröskuldinn og gæti þurrkast út. Forysta Samfylkingar virðist ekki hafa nein skilaboð sem kjósendur taka eftir - eða taka mark á. Vinstri grænir eru með formann sem nýtur einna mest trausts í pólitík í landinu en hún er eins og í röngum skóm með flokk í eftirdragi sem fólk tengir helst við stjórnlyndi og afturhald. Ef til vill ætti Katrín betur heima meðal pírata.“