Fyrirhuguð virkjun Hvalár í Ófeigsfirði hefur valdið hatrömmum deilum og mörgum þótt undarlegt að Vinstri græn hafi ekki sett sig upp á móti framkvæmdinni. Í viðtali við Lindu Blöndal í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld bendir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á að í rammaáætlun árið 2013 hafi Hvalárvirkjun verið samþykkt í nýtingarflokk. Mörg svæði hafi þá farið í verndarflokk en Hvalá í Ófeigsfirði hafi ekki verið eitt þeirra.
„Ferlið er þannig að í kjölfarið fer fram umhverfismat. Í því kemur fram ýmislegt og það eru margir neikvæðir þættir sem þar birtast. En þá er málið komið á stig sveitarstjórna, og það er sveitarstjórnin sem tekur afstöðu til endanlegrar framkvæmdar. Það er sá lagarammi sem við búum við. Það er mjög mikilvægt að fólk átti sig á þessu þegar við ræðum þetta mál,“ segir Katrín.
Því sé það ekki í hennar höndum að taka ákvörðun um framkvæmdir sem þessar. Katrín segir að þó að svæði séu sett í nýtingarflokk eigi það ekki sjálkrafa að þýða að þau verði nýtt. Aðkoma Alþingis í ferlinu sé fólgin í því að gera umhverfismat og þykir Katrínu brýnt að sveitarstjórnir axli ábyrgð með því að taka mark á því sem þar kemur fram.
Hún segir að það megi velta því fyrir sér hvort þetta sé rétta ferlið. „Það var mikið mál að koma á lögunum um rammaáætlun. Áður en þau voru sett á sínum tíma, þá var tekin afstaða til einstakra framkvæmda, Kárahnjúkar auðvitað frægust slíkra framkvæmda. Gríðarlega stór framkvæmd og þá var sagt: „Þessi framkvæmd hefði aldrei lent í nýtingarflokki rammaáætlunar.“ Þess vegna var þessi aðferðafræði tekin upp.“
„Ég segi að við eigum að ræða hvort þetta sé góð aðferðafræði. Er eðlilegt að þingið komi aftur að málum og umhverfismatið hafi meira vægi? Umhverfismatið dregur til dæmis fram mjög neikvæðar afleiðingar af þessari virkjun,“ segir Katrín.
Í þættinum í kvöld ræðir Katrín einnig innleiðingu þriðja orkupakkans, en hún er á því að málið hafi verið fullrætt í vor og því ekki verið þörf á að halda aukaþingfundina sem fóru fram í dag og í gær. Auk þess ræðir Katrín um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar, en hún er á því að þörf sé á að ná fram breytingum á stjórnarskrá á þessu kjörtímabili.
Þá ræðir Katrín uppbyggingu Bandaríkjahers á varnarsvæðinu í Reykjanesbæ og hvort hún hyggist hitta Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, þegar hann kemur í heimsókn til landsins í næstu viku.