Katrín: formaður en ekki forseti

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segist ætla að gefa kost á sér aftur til formennsku á landsfundi flokksins, sem fer fram um næstu helgi.

Aftur á móti segist hún ekki stefna á forsetaframboð, að því er hún fullyrti á Þjóðbraut Páls Magnússonar á Hringbraut í gærkvöld, en nafn hennar hefur margsinnis verið nefnt í sömu andrá og rætt hefur verið um líkleg forsetaefni vegna kosninganna á næsta ári. Alls óvíst er þó enn hvort núverandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson hyggist sækjast eftir endurkjöri.

Katrín útilokar sumsé framboð á þeim vettvangi í þætti kvöldsins.

Hún fór annars yfir stjórnmálasviðið í þættinum og mat hið pólitíska andrúm eins og það blasir við henni nú um stundir, en ræddi jafnframt nýjar vendingar í bankamálum.

Hægt er að nálgast þáttimnn hér á hringbraut.is.