Katrín: „ekki í kirkju, ekki í þjóðkirkj­unni og ég er ekki einu sinni skírð“

Katrín Jakobsdóttir hefur ekki sterk skoðun á þingsályktunartillögu um aðskilnað ríkis og kirkju. Í tillögunni segir að leggja skuli frumvarp fram í síðasta lagi á vorþingi árið 2021 og aðskilnað fari fram eigi síðar en við árslok 2034. Katrín segir í samtali við Morgunblaðið að hún taki tillit til ráðgef­andi þjóðar­at­kvæðagreiðslu um nýja stjórn­ar­skrá frá árinu 2012 þar sem sér­stak­lega vr spurt um hvort það ætti að vera ákvæði um þjóðkirkju í stjórn­ar­skrá og meiri­hlut­inn taldi að svo ætti að vera.

Aðspurð hvort hún sé trúuð svarr Katrín:

„Ég er ekki í kirkju, ekki í þjóðkirkj­unni og ég er ekki einu sinni skírð.“

Þá bætir Katrín við: „Ég hef líka mik­inn áhuga á trú­mál­um og ég held að ég geti al­veg sagt að í mér sé ákveðinn trú­leiki.“