\"Ég mun ekki bjóða mig fram til embættis forseta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosningabarátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mannréttindum og lýðræðisumbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.\"
Þetta skrifar Katrín Jakobsdóttir sem hefur mælst með langmest fylgi meðal þjóðarinnar í skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið um vinsældir hugsanlegra forsetaframbjóðenda.
Umræða um að Katrín færi fram fékk byr undir báða vængi í síðustu viku með ítarlegu viðtali Stundarinnar við Katrínu. Þá sagðist hún ekki geta annað en hugsað málið vegna þess sem stuðnings sem hún hefðði fengið í forsetaembættið. Um helgina ræddi Katrín við fjölskyldu sína. En niðurstaðan er nei. katrín fer ekki fram, a.m.k. ekki að þessu sinni eins og fram kemur í yfirlýsingu hennar.
Katrín ræðir að fjölmargir hafi haft samband að undanförnu og hvatt hana til að bjóða mig fram sem forseta Íslands. \"Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekkert, fólk hvaðanæva af landinu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kannanir þar sem einhverjir virtust telja mig heppilega í þetta embætti.\"
Hún heldur áfram: \"Af þessum sökum fannst mér ég ekki geta annað en hugleitt málið alvarlega í nokkra daga. Ég hef líka tekið eftir gagnrýni frá einstaka mönnum sem eru duglegir að tjá sig, virðast óttast framboð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almennilega við þá hugmynd að konur taki eigin ákvarðanir.
Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjölbreyttum hópi fólks sem ég ber virðingu fyrir og vil þakka hvatninguna.\"
Óháð þessum jákvæðu viðbrögðum en einnig algjörlega burtséð frá þeim neikvæðu segist Katrín hins vegar hafa tekið þá ákvörðun að skipta ekki um skoðun. \"Ég mun ekki bjóða mig fram til embættis forseta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosningabarátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mannréttindum og lýðræðisumbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.\"