Katrín að taka völdin af bjarna

Það er tekist á í Ritstjóraþætti kvöldsins þar sem ritstjórarnir fyrrrverandi og ráðherrarnir Svavar Gestsson og Þorsteinn Pálsson takast á um krónuhagkerfið og áhrif þess á heimilin og fyrirtækin í landinu.

Þorsteinn segir krónuna færa til óheyrilegt fjármagn í landinu - og núna í aðdraganda kjarasamninga frá launþegum til fyrirtækja, en Svavar, sem ólíkt Þorsteini vill ekki sjá nýjan gjaldmiðil segir krónuna einfaldlega lúta markaðslögmálum og varla sé hægrimaðurinn við hlið hans mótfallin þeim.

Og þeir eru heldur ekki sammála um kjarasamningavána framundan; Svavar segir ekki mikið að óttast þrátt fyrir yfirlýsingar róttæka armsins innan verkalýðshreyfingarinnar sem minni raunar bara á fyrri tíma, en Þorsteinn geldur varhug við því að ríkið muni sýna alltof mikil lausatök í fjármálum sínum til að koma til móts við aðila vinnumarkaðarins, sjálfur hafi hann gert mistök í þeim efnum í fjármálaráðherratíð sinni 1986 og óski þess að ríkjandi stjórnvöld læri af þeim glöpum hans að gefa of mikið eftir - og opna kassann.

Og þeir eru heldur ekki sammála um líðan ríkisstjórnarinnar; Þorsteinn segir hana stjórn stöðnunar, en Svavar segir hana koma miklu í verk, Þorsteinn segir hana ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, en Svavar segir hana vinstristjórn Katrínar Jakobsdóttur, en þeir eru loksins á einu máli um það að Katrín muni taka völdin af Bjarna í vetur þegar kjaraútspil stjórnarinnar lítur dagsins ljós.

Ritstjórarnir byrja upp úr 21:00 þegar frétta- og umræðuþátturinn 21 hefur göngu sína á Hringbraut.