Katalónskum skilnaðarmönnum vex fiskur um hrygg. Stjórnmálaframtíð Katalóníu er enn alveg óráðin. Og engir - hvorki hægri menn eða vinstri - geta svarað þeirri spurningu hvernig málin snúast.
Spánverjar - aðrir en Katalóníumenn - kunna að hefja leita að hinum nýja sterka manni með persónuleika Frankó herhöfðingja til að taka um stjórnvölin. Öflug samtvinnun hersins og kirkjunnar og kaupsýsluaðila tryggir nýjum Frankó herhöfðingja þá það stuðningsafl sem til þarf.
Katalónía var á miðöldum sjálfstætt ríki og hefur orðið mesta iðanaðar- og viðskiptasvæði Spánar. Iðnbyltingin vakti Katalóníu til nýrra umsvifa. En Katalónía var og kann aftur að verða vettvangur sífelldra uppþota og ringulreiðar. Jafnvel blóðugra átaka.
Í spænsku borgarsyrjöldinni gegndu Katalóni og Barselóna mikilvægu hlutverki og borgin var höfuðborg spænska lýðveldisins árið1937. Nú líður að því að Madrid stjórnin leggist fast gegn hverri róttækri tilraun Katalóníu til að breyta því kerfi stjórnarhátta sem nú eru á Spáni.