Kastaðist í kekki milli Hjörvars og Mikaels: „Okkur lenti aðeins saman“

Fótboltasérfræðingurinn Hjörvar Hafliðason segir það ýkjur að hann hafi lent í slag og kýlt Mikael Nikulásson, annan fótboltasérfræðing, á barnum Spot í gærkvöldi.

Hjörvar viðurkennir í samtali við Vísi að þeim hafi lent saman, en það séu ýkjur að hann hafi verið ölvaður og látið hnefana tala.

Þeir eru báðir með hlaðvörp um fótbolta, Dr. Football og The Mike Show. Þeir voru á Spot að fylgjast með úrslitaleikurinn í Evrópudeildinni í fótbolta þar sem Manchester United tapaði fyrir Villareal.

Dr. Football er búinn að gefa út yfirlýsingu, en þar segir:

„Engar áhyggjur kæru leikmenn. Við Mike erum enn bestu vinir. Við leikgreindum leikinn í gær og fórum vissulega yfir sviðið. Við höfum verið að rífast frá árinu 1998 og það er ekkert að fara breytast. Okkur lenti aðeins saman í gær eins og á öllum Reiðhallaræfingum í den en erum báðir mjög sáttir í dag. Heyrumst í fyrramálið.“