Framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands segir allt sjóðandi brjálað í Karphúsinu. Samningur til fjögurra ára sé nánast tilbúinn, en atriði sem samninganefnd ríkisins vilji koma að, komi í veg fyrir að hægt sé að ganga frá samningi.
Þetta kom fram á fréttavef RÚV í gærkvöld, en þar segir að samninganefndir SFR, Landssambands lögreglumanna og Sjúkraliðafélags Íslands sitji nú á fundi með samninganefnd ríkisins í húsnæði ríkissáttasemjara - og ekki sé útiolokað að setið verði við fram eftir kvöldi. Staða viðræðna sé mjög viðkvæm - og þótt samninganefndirnar hafi dvalið langdvölum hjá ríkissáttasemjara hafi í raun ekki verið setið á löngum fundum að sögn Gunnars Arnar Gunnarssonar framkvæmdastjóra Sjúkraliðafélags Íslands.
\"Við höfum alls ekki setið á löngum fundum. Við höfum setið þarna niður frá og gert ekki neitt vegna þess að það er einhver óskýrð stærð að það er ekkert rætt. Það er löngu komið á borðið sem á að útdeila á þessum fjórum árum, en það er eitthvað sem ég ætla ekki einu sinni að nefna hvað er sem festir þetta og við fáum engar umræður,“ sagði Gunnar Örn við RÚV í gærkvöld.