Karp um fé seinki komu flóttamanna

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, greindi frá því undir liðnum Störf þingsins í dag að síðan áætlun Íslands var lögð fram um móttöku flóttamanna hefði lítið sem ekkert þokast í móttöku þeirra. Þetta fordæmdi þingmaðurinn og rifjaði upp það sem fyrst kom fram í fréttaskýringarþættinum Kvikunni á Hringbraut að ríki og sveitarfélög hafa ekki klárað samninga um skiptingu fjármuna vegna verkefnins. Kallaði þingmaðurinn það karp milli ríkis og sveitarfélaga.

Sem siðaðri þjóð bæri Íslendingum að leggja fram það fé sem þyrfti. Möglunarlaust yrði að taka móti fleira flóttafólki.